Heildarþjónusta fyrir gistiheimili og hótel
Nostra og GoDo hafa nú tekið höndum saman og bjóða upp á heildarþjónustu fyrir gistiheimili, hótel og airbnb leiguíbúðir. Með þjónustunni getum við alfarið séð um rekstur einingarinnar á einfaldan og öruggan hátt. Við bjóðum upp á fagleg og árangursrík vinnubrögð og leggjum áherslu á gæði í öllu því sem við tökum okkur fyrir hendur. Við sjáum til þess að gestir fái gæða þjónustu og ánægjulega upplifun í snyrtilegu og hreinu umhverfi. Það sem er innfalið í þjónustunni hverju sinni fer eftir þörfum viðskiptavina.

GoDo sér um
Verðstýringu
Innheimtu
Samskipti við gesti allan sólarhringinn
Umsjón sölusíðna
Bókunarskrifstofu fyrir ferðaþjónustu
Nostra sér um
Þrif á herbergjum eða íbúðum
Þvott og leigu á líni og handklæðum
Kaup á rekstrarvörum fyrir gesti
Sameignaþrif
Umsjón á uppvaski og þrifum yfir morgunverði