Flutningsþrif á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum

Þegar kemur að því að flytja er tíminn oft af skornum skammti og milljón hlutir sem þarf að gera. Flutningsþrif eru oft það sem gleymist, en þar koma Nostra ræstingar inn.

Mörgum þykir leiðinlegt að þrífa, og sérstaklega fyrir/eftir flutning, en ekki okkur!

Við sérhæfum okkur í ítarlegum flutningsþrifum, bæði fyrir þá sem eru að fara úr húsnæði og þá sem eru að flytja inn í nýtt heimili. Við þrífum allt frá toppi til táa - Skápar innanfrá, gluggar, heimilistæki, baðherbergi, eldhús og allt þar á milli.

Þú getur þá skilað eða tekið við húsnæði áhyggjulaust, við sjáum um flutningsþrifin.

Hvað er innifalið í flutningsþrifum?

Baðherbergi

✔ Gólf ryksugað og skúrað

✔ Klósett skrúbbað og þrifið

✔ Sturta/bað skrúbbað og þrifið

✔ Vaskar skrúbbaðir og þrifnir

✔ Speglar þrifnir

✔ Fægjum blöndunartæki

✔ Gluggar þrifnir að innan

✔ Ruslafötur tæmdar

✔ Þurrkað af ljósrofum og rafmagnstenglum

✔ Hurð þrifin

Eldhús

✔ Gólf ryksugað og skúrað

✔ Eldhúsinnrétting þrifin innan og utan

✔ Eldavél og helluborð skrúbbað og þrifið

✔ Vaskur skrúbbaður og þrifinn

✔ Fægjum blöndunartæki

✔ Ruslafötur tæmdar

✔ Þurrkað af ljósrofum og rafmagnstenglum

✔ Þurrkað af listum

✔ Gluggar þrifnir að innan

✔ Ísskápur þrifinn að innan

✔ Bakaraofn þrifinn

✔ Hurð þrifin

Svefnherbergi og önnur rými

✔ Gólf ryksugað og skúrað

✔ Fataskápar/skápar þrifnir innan og utan

✔ Þurrkað úr gluggasyllum

✔ Ruslafötur tæmdar

✔ Þurrkað af ljósrofum og rafmagnstenglum

✔ Þurrkað af listum

✔ Gluggar þrifnir að innan

✔ Hurð þrifin

5 flutningskassar staflaðir upp á hillu, í bakgrunn eru svo hvítar flísar

Hvernig er ferlið?

  1. Þú fyllir út formið hér fyrir neðan.
  2. Við höfum samband, förum yfir allt sem þarf að gera og tryggjum að við höfum allar upplýsingar.
  3. Við mætum á umsömdum tíma
  4. Við þrífum!

Nostra er valið af leigusölum, fasteigansölum og einstaklingum um allt höfuðborgarsvæðið og á Suðurnesjum, til að tryggja að húsnæði líti rétt út

Hafðu samband í dag og fáðu tilboð!