Betri umsagnir og lægri kostnaður

Eitt það fyrsta sem gestir taka eftir á hótelherbergi er rúmið, og hvort allt sé hreint. Hrein góð rúmföt skila sér í betri umsögnum og auka ánægju gesta.

Lín sem endist lengur þýðir minni kostnaður. Ódýrt lín verður dýrt þegar þarf að skipta því út á hverju ári.

Hótelstaðall

Við bjóðum upp á hótel- og gististaðalín frá Resuinsa á Spáni, sem hefur framleitt lín fyrir hótelgeirann síðan 1926.

Efni og saumaskapur sem er gerður fyrir tíða notkun sem fylgir hótelrekstri. 

Línið heldur formi, áferð og lit þótt að það fari oft í þvott.

Kona sem heldur á þremur hvítum handkæðum

Einn aðili fyrir allt

Við seljum lín og getum líka séð um þvottinn, herbergisþrif, dýnuhreinsun, teppahreinsun og allt mögulegt.

Allt til að einfalda þér reksturinn

Viltu fá tilboð í hótellín?

Hafðu samband og fáðu tilboð í þjónustuna